Leita í fréttum mbl.is
Embla

Gleðileg jól!

Já það vantar ekki bloggletina á þessum bænum ;) Hef það þó mér til afsökunar að ég er varla búin að hafa tíma til að anda upp á síðkastið, hvað þá meira! Helst í fréttum er að ég er búin með desemberprófið mitt sem gekk bara ágætlega held ég, og við kláruðum verkefnið okkar, sem ég hef ekki háar væntingar fyrir. Langar bara að ná, fer í munnlegt próf úr því seinni hluta janúars. Og ekki má gleyma hryllingnum sem bíður mín 10. janúar og ég mun væntanlega eyða meiripartinum af jólafríinu heima til að læra fyrir :/. Ég biðst hér með afsökunar ef ég næ ekki að hitta á alla sem mig langar að hitta á á Íslandinu góða, en ég þarf að læra ofsa mikið og hitta ofsa marga svo það verður eitthvað lítið um tíma :/
 
Í morgun vaknaði ég svo fyrir allar aldir til að sækja sendiferðabíl og Þór sem hjálpaði mér að flytja dótið mitt hingað til Liesbeth. Vorum á tímalimiti því það er bara hægt að leigja svona bíla milli 8 og 12. En við vorum meira að segja á undan áætlun... Gekk bara mjög vel og ég þakka fyrir hjálpina :D Nú mun ég ekki stíga fæti í Brabrand aftur nema til að heimsækja Samiru eða kaupa góða brauðið í Bazar Vest! Ég var svo búin á því eftir síðustu daga og vikur, og auðvitað flutningana að ég steinsofnaði og svaf í fimm tíma í dag takk fyrir, og hefði sko ekkert á móti því að sofna fljótlega aftur!
 
Þegar ég kem aftur til Århus bý ég svo hérna hjá Liesbeth í ca. 3 vikur og svo flytjum við saman á nýja staðinn. Ég er búin að skoða slotið og er himinlifandi, ofsalega fínt og flott, á frábærum stað og við verðum með suðursvalir og sjónvarpsherbergi :P Ég valdi bara minna herbergið (þá fer minna fyrir því hvað ég á fá húsgögn, og ég þarf að borga minna ;)). Ég hlakka mjög mikið til að flytja þangað, vægast sagt!
 
Á morgun liggur svo leiðin til Köben til að byrja mig... ég og Þór eigum sama flug um kvöldið svo við ætlum að skoða okkur pínu um áður en við förum á Kastrup. Vonandi nær maður að ná sér í smá jólaskap þar, því það er eitthvað djúpt á því hérna í DK hjá mér sökum tímaleysis, jólaljósaleysis, snjóleysis og allsleysis bara svei mér þá!
 
Að lokum langar mig að óska ykkur öllum gleðilegra jóla (þar sem ég er hryllilega metnaðarlaus í ár og sendi ekki eitt einasta jólakort) og farsæls komandi árs... Ég verð með gamla númerið mitt á Íslandi (8673341) og hlakka til að sjá ykkur, vonandi sem flest!
 
 
 
Ein jólamynd fyrir mig.....
 
 
babbo261
 
Og ein fyrir alla hina ;)

Jólaknús, Tinna

Flutningar og tónleikar

Halloj.... lífið gengur sinn vanagang hér í Danaveldi. Styttist í heimferðina, sem ég er ofsa spennt fyrir (þó svo að meirhlutanum verði örugglega eytt í lærdóm :/). Reyndar þarf víst að klára eitt hrikalegt verkefni fyrst og eitt próf að auki en það hlýtur nú að reddast (er það ekki íslenski hugsanahátturinn?). 

Helst í fréttum er að ég er að fara að flytja úr Gellerup!!! VÚÚÚÚ (landsmóts)... Ég er svo hræðilega glöð og ánægð yfir því. Flyt draslið mitt til Liesbeth áður en ég fer heim um jólin, bý svo í hinu herberginu hjá henni fram í lok janúar (því skrýtna franska parið verður flutt út) og svo flytjum við saman í íbúð sem er hérna í Norðurbænum í lok janúar... get ekki beðið! 

Annað helst í fréttum er að ég var á Nik&Jay tónleikum í gær... já hlægið bara en það var svo ógeðslega gaman! Ég verð nú að segja að ég fór nú ekki með neinar brjálaðar væntingar en maaan þetta var geðveikt! Stanslaust eins og hálfs tíma show og aldrei bil á milli laga... Awesome. Og það var brjáluð stemning!

 

 
Ég og fröken Marie Louise á tónleikunum
 
Lækker!
 
Annars man ég ekkert eftir mörgu öðru merkilegu að segja frá núna í augnablikinu svo ég læt þetta duga.... -Tinna
 

 


Afsakið hlé...

Jæja, ég biðst forláts, maður er ekki beint búinn að vera duglegur í blogginu, en ætla að bæta úr því hér með!

Rósa og Jana komu í heimsókn hérna í byrjun nóvember. Það var æðislegt að sjá þær, og við gerðum nú bara mest af því að njóta samverunnar, reyndum líka að spila Trivial á dönsku, kíktum að sjálfsögðu út á lífið, fórum í Den Gamle By og út að borða á uppáhalds staðinn minn. Þetta var frábært í alla staði, og svo vorum við svo heppnar að fá að gista í herbergi í kjallaranum hjá Árdísi sem býr á mun heppilegri stað en ég. Risa knús til hennar fyrir alla hjálpina og sturtuferðirnar ;*! Fékk svo líka skemmtilega afmælisgjöf sem mun eflaust koma að góðum notum einn daginn :P

 

 
 
 
 

 

Þessar elskur yfirgáfu mig svo á sunnudeginum 9. nóv. Á þriðudeginum var svo afmælið mitt. Fékk einn pakka frá mömmu, Hilmari og strákunum sem innihélt m.a.s. Nóa Kropp, piparmyntusúkkulaði og myndir eftir Aron... mjög góður pakki! Um kvöldið fór ég svo heim til Marie Louise og borðaði með stelpunum, eftir matinn fékk ég svo köku mmmm... og í gjöf frá þeim fékk ég kokteilsett og 6 martini glös :P Sem þótti víst vel við hæfi þar sem ég er víst the cocktail maker í hópnum...

Daginn eftir það fór ég svo til London. Þar eyddi ég einum degi ein í rólegheitum, en svo komu elskurnar mínar (Jóna og Helga) á fimmtudeginum. Það var BEST í heimi að sjá þær. Það sem við gerðum mest af var að *hóst* versla... en bara í Primark! Náði sem betur fer að kaupa mikið af jólagjöfum :) Einnig kíktum við aðeins á British museum, út að borða, höfðum big night in (KFC style... meheheh), borðuðum íslenska osta og kíktum á mannlífið. Ótrúlega góð ferð í alla staði!!!

 

 
 

 

Og getiði hvað... haldið að mín hafi ekki náð sér í 10 (auðvitað á danska skalanum) í prófinu margumrædda, sem er næst hæsta einkunn sem hægt er að fá hérna í DK... ekki lítið sátt! ;) Og aðrar en leiðinlegri skólafréttir, helvítis ósamræmi í ölllu hérna og þetta var víst false alarm, ég verð að vera á staðnum til að taka prófið þann 10. jan svo ég fer heim viku fyrr en ég ætlaði mér eða svo :/ Frekar ömurlegt en svona er þetta víst....

 Annars lofaði ég víst ákveðnum dreng frá Ungverjalandi að minnast á hann hérna og tala um hann sem "A nice, normal, hungarian guy" ;) There you go! :P

Verð víst að þjóta núna, er að fara á hollenskt Sinterklaas kvöld sem verður haldið heima hjá Martin, mæli með að fólk fletti því upp á Wikipedia, fucked up stuff!!!

 Knús og kossar, Tinna


Brace yourselves...

Fékk prófdagsetningarnar mínar í dag, fékk líka þær unaðsfréttir að öll prófin verða internet-próf og því hægt að leysa þau hvar sem maður er staddur í heiminum... til dæmis Íslandi... svo...

ÉG VERÐ Á ÍSLANDI 21. DESEMBER TIL 15. JANÚAR!!!

Hlakka óendanlega til að sjá ykkur öll ;*

 

 

 
 
 
 
 
*þessar myndir eru tileinkaðar Rósu ;)

 


Jæja þá!

Kominn tími á blogg og þó fyrr hefði verið! Af mér er allt gott að frétta. Svona það helsta að prófið ógurlega er yfirstaðið! Kennaralufsunni tókst að klúðra stærðfræðispurningunni svo hún verður að öllum líkindum ekki tekin með, ég er bara ánægð með það svosem :P Svo klúðraði hann nú ýmsu öðru í þessu prófi, það verður forvitnilegt að sjá hvernig þetta fer allt saman. Hann er alveg úti á túni í lífinu grey maðurinn...

Á fimmtudeginum fyrir prófið fór ég annars út að borða með stelpunum á Sidebar því Nanda átti afmæli... maturinn var ææææðis og kokteilarnir ennþá betri. Eftir matinn kom svo fleira fólk, og svo fór maður bara heim í fyrra fallinu, mjög gaman!

Fabulous vinkonuhópurinn minn: Samira, Marie Louise, ég, Nanda afmælisbarn og Liesbeth
 
 
Á laugardeginum var svo prófið, og um kvöldið var svo bekkjarpartý heima hjá Rune, sem á btw heima í gjööööðððveikustu íbúð sem ég hef séð! Og það var bara mjööög gaman :)
 
Til að fyrirbyggja allan misskilning þá er enginn topless þarna...
 

Annars er það líka svona í fréttum að flugmiðinn minn til London var keyptur hjá Sterling, sem fór svo bara á hausinn í seinustu viku! Ætla ekki að reyna að útskýra hversu óendanlega pirruð ég var, en nú á ég bara nýjan miða enda kom ekki til greina að sleppa því að fara til London og hitta sykurpúðana mína ;* Í staðinn verð ég einn auka dag í London ein, flýg út þann 12. nóvember, það verður bara áhugavert :D

 

Þessar myndarlegu konur eiga funheitt stefnumót í London eftir örfáa daga...
 

Talandi um sykurpúða þá koma Rósa og Jana í heimsókn á FIMMTUDAGINN. Þið verðið bara að afsaka hvað ég tala oft um það, sem og London, ég hlakka bara svo til. Get ekki beðið eftir að fá þessar elskur ;*

 

Þessar mæta hressar til mín eftir fjóra daga ;)
 

 

Í síðustu viku hitti ég líka Bylgju mína á kaffihúsi... alltaf gaman að hittast og við verðum að gera meira af því, við búum nú einu sinni í sama bæ ;)

Annars veit ég ekki alveg hvað ég á að segja frá hérna... Þetta blogg var kannski innihaldslaust en jæja...! Er líka byrjuð að hlakka ofsa ofsa ofsa mikið til að koma heim um jólin! Get ekki beðið!

Segjum þetta þá bara gott í bili... knús, Tinna :)

 


Smá heimþrá

Þetta verður ekki mjög merkilegt blogg í þetta sinn, þar sem ég á að vera að læra undir próf, og ekki margt merkilegt hefur á daga mína drifið síðan síðast. Hins vegar fékk ég heiftarlega heimþrá í gær og fór að hugsa um allt sem ég sakna að heiman...

  • Mömmu og Himma
  • Pabba og Helgu
  • Allra litlu systkina minna
  • Jónu og Gunna
  • Helgu (þó hún sé í Frakklandi)
  • Salvarar
  • Rósu (þó hún sé í Finnlandi)
  • Jönu
  • Andrésar
  • Svönu
  • Allra hinna vina minna
  • Íslenska vatnsins
  • Nóakropps
  • Gula bílsins míns
  • Að geta ekki hoppað út og hitt vini mína hvenær sem er
  • HR
  • Íslenskra osta
  • Að djamma í miðbæ Reykjavíkur
  • Bitabílsins eftir djammið
  • Nings
  • Serrano's
  • Cheerios
  • Stóra rúmsins míns
  • Íbúðarinnar minnar in general
  • Að fara ekki í bað á hverjum degi (don't get me wrong, fer í sturtu á hverjum degi, langar bara í baðkarið mitt aftur)
  • Allra fatanna minna
  • ...og dótsins míns sem er ofan í kassa á Íslandi
  • Að lesa íslenskar bækur
  • Að tala íslensku á hverjum degi
  • Norðurljósanna
  • Íslensks veðurs
  • Að vera út af fyrir mig
  • ...og þar af leiðandi gert allskonar vitleysu, eins og að syngja eins hátt og ég get.
  • Að búa í hreinni íbúð
  • Borgarness
  • Jewel Queen stússins
  • Að þurfa ekki að hafa áhyggjur af genginu endalaust
  • Að geta borgað með korti út í matvörubúð

Þetta var bara svona það helsta... Hins vegar hef ég það svosem fínt hérna úti, enda það með nokkrum myndum því til sönnunar ;)

 
 
 
 

Knúúús... Tinna


Roll me ooooover...

Ætli það sé ekki kominn tími á vikulega bloggið ;)

Tíminn líður ofsalega hratt og nú styttist í það að ég hafi verið hér í tvo heila mánuði! Engin stórtíðindi síðan síðast, lífið gengur sinn vanagang. Af efnahagnum er það að segja að ég hef ekki ennþá prufað að taka út úr hraðbanka og vona bara að það virki næst þegar ég prufa, agalegt ástand fyrir marga námsmenn og aðra sem eru staddir svona í útlöndum að geta ekki nálgast peningana sína!!!  

Er byrjuð í nýju námskeiði, Research Methods, og þar fer ég heldur ekki varhluta af tölfræðinni, alveg merkilegt hvað þeir hafa gaman af tölfræði... markaðsfræðifólkið ranghvolfir augunum yfir þessu, því ef það er eitthvað sem fólk sem fer í markaðsfræði á sameiginlegt, þá er það andúð á tölum og reikningi ;) En vonandi að maður hafi eitthvað gagn af þessu. Stórt verkefni að fara í gang og eins gott að spýta í lófana.

Prófið skelfilega er eftir tólf daga. Ætla einmitt LOKSINS að fara í mat til Árdísar og Evu á morgun og við Árdís ætlum að kíkja aðeins yfir efni fyrir prófið. Markmið mitt er ekki að skora hátt heldur bara ná þessu prófi, því ef maður fellur, þá fær maður engin námslán, uss og það væri nú ekki gott á þessum síðustu og verstu ;) Eftir prófið er svo bekkjarpartý í anda Night at the Roxbury's, það verður áhugavert!

Helstu tíðindi vikunnar eru þau að á laugardaginn komu Liesbeth, Samira, Marie-Louise og Nanda hingað til mín í brunch. Dennis flúði af hólmi á meðan og við fengum að vera með stofuna. Allir komu með eitthvað að borða eða drekka og það var sko ALLT of mikið af mat, greinilega ekki bara séríslenskt fyrirbrigði ;) En það var ofsa gaman og núna hefur þessi hópur planað annan hitting, ætlum líklegast í bíó á miðvikudagskvöldið ;)

Önnur tíðindi héðan, sem gerðust einnig á laugardaginn, að maður í þarnæstu blokk var drepinn af frænda sínum, bara svona rétt í hádeginu! Heyrði svosem í eikkverjum löggubílum hér fyrir utan en var ekki mikið að kippa mér upp við það, kunnuglegt hljóð á þessum bæ, en svo sagði Marie Louise að hún hefði heyrt þetta í fréttunum á leiðinni... já maður er svo sannarlega kominn í gettóið ;)

Svo er ég víst búin að samþykkja að vera með í að skipuleggja eitt stykki NESU ráðstefnu sem verður haldin hér í mars, líkt og sú sem ég, Rósa og Jana fórum á forðum daga ;) Undirliggjandi ástæður verða ekki gefnar upp, en ég er ekki í þessari skipulagningu mér til gamans eða yndisauka ;)

Enda þetta með nokkrum myndum...

 

 Á Klubben sl. fimmtudag
 
Frá pikknikkinu í Skjoldhoj um daginn
 
 
Samira kjútípæ
 
Einstaklega sólargrett ég
 
Pós-Liesbeth
 
Nýjasta innlit-útlit viðbótin í herbergið! Pretty non?
 
Og að lokum.. tadaaa... mynd sem ég tók sjálf! Hér niðri í bæ..
 
Over and out i bili, besooooos Tinna

 


Mánudagur til mæðu...

Ætla ekki að tala um efnahagsmálin. Vita allir núverandi stöðu og ég er alveg nógu þunglynd út af því þó ég fari ekki að skrifa um það hér líka...

Hins vegar er margt skemmtilegt búið að ske síðan ég skrifaði síðast! :) Haldiði að ungfrú Jana Rós ætli ekki að skella sér til Árósa með Rósu!!! ;) Þetta verður því fullkomið reunion frá síðustu veru minni hér, því við erum búnar að panta okkur herbergi á Cab-inn :P Nákvæmlega mánuður í að þær komi!!! Svo aðeins 4 dögum eftir að þær fara heim aftur fer ég til London og sé Jónuna mína og Helguna mína... plús að ég á afmæli í millitíðinni :D svo ég er að sjá fram á einstaklega skemmtilegan nóvembermánuð! :D

Á fimmtudag var buddy-party í Klubben, þar sem flestir dönsku buddyarnir og við útlendingarnir komum saman og borðuðum pizzu og svona... og auðvitað var svo ekkert farið snemma heim ;) Sátum með dönskum strákum (sem mundu víst allir eftir mér frá NESU 2006 en ég ekkert eftir þeim... nema auðvitað einum sem hefur mjög svo eftirminnilegt útlit hehehe). Þegar leið að lokun skelltum við okkur svo niður í bæ og fórum á Heidi's þar sem var nóg af fólki og mjög gaman... Fórum svo og fengum okkur hamborgara þar sem mjög sætur Dani skildi ekkert í því að ég myndi ekki eftir honum frá síðustu helgi, jafnvel þótt ég reyndi að telja honum trú um að ég hefði alls ekkert farið út um síðustu helgi! :D Ég, Paula og Liesbeth eyddum svo nóttinni heima hjá þeirri síðastnefndu (þar sem ég sef skuggalega oft þessa dagana, hmmm sef bara þar eftir djamm... hmmm...)

Á laugardaginn var svo sérstakur dagur fyrir fólkið í bekknum mínum, skipulagður af MaRS (nemendafélaginu mínu). Hittumst kl 10 og fengum morgunmat, svo var okkur skipt í 6 manna lið og eyddum svo deginum í að leysa ýmsar þrautir. Kynntist nýju fólki og þetta var mjög svo skemmtilegt... uppáhalds leikurinn minn var "Read my ass" sem krefst eiginlega sýnikennslu, og skemmst frá því að segja að liðið mitt skoraði hæst af öllum í þeirri þraut ;) Svo var farið á kaffihús, út að borða og svo höfðum við neðri hæðina á Heidi's út af fyrir okkur. Við vinkonurnar vorum reyndar svo forsjálar að skrá okkur í skiptinemapartý á Social Club sem er svo heppilega staddur beint við hliðina á Heidi's, og ákváðum að tékka á því um kl. hálfellefu... komum beint í fría kokteila! :D Ég sem sannur Íslendingur notfærði mér tækifærið auðvitað út í ystu æsar, það er nú einu sinni kreppa, maður verður að spara ;) Ég og Liesbeth löbbuðum svo heim um kl 2 í ROKINU og kuldanum, haustið er svo sannarlega komið hérna í DK! Samt enginn snjór eins og heima á klakanum (thank god!). 

Gærdagurinn var svo kósýheit par excellans, sofið frameftir, heim í sturtu og kúr og aftur til Liesbeth með Samiru í heimatilbúinn mat og kertaljós... gæti varla verið betra!

Ætla að láta þetta duga í bili.... vil minna ákveðið fólk á að já, það er allt í lagi að hringja í mig once in a while, ekki láta eins og þið vitið ekki númerið mitt ;)

Looooooove, Tyra... eða Tinna


Ljúfa líf....!

Ætli það sé ekki kominn tími á nýtt blogg ;) Allt að fara til fjandans á Íslandi les maður, og ekkert í "góðu gengi" hmmm amk ekki hér í DK þar sem danska krónan verður sjálfsagt orðin 20 íslenskar krónur.. tja.. ég giska á miðvikudaginn (m.v. undangengna þróun).

Síðastliðin vika er hins vegar búin að vera afskaplega góð, ég er að fíla mig rosalega vel hérna... búin að ná að læra svolítið og vinna pínulítið upp í IE, dauðafaginu mikla. Á fimmtudaginn eftir skóla kíkti ég með hluta af study hópnum mínum niður í bæ þar sem við kíktum í búðir og sátum svo úti og sleiktum sólina á kaffihúsi. Seinna um kvöldið fór ég svo með Liesbeth á Klubben þar sem var AFAR glatt á hjalla svo ekki sé meira sagt :P Svo ofsalega gaman var að mér tókst að skemma símann minn á mjög einkennilegan máta (tja... hann datt einhvernveginn ofan í klósettið) svo nú hef ég tapað ÖLLUM númerum, fólk má endilega láta mig hafa númerin sín aftur ;).

 
 
 
 

Á föstudaginn rölti ég niður í bæ, ég og Liesbeth fengum okkur kínverskan þynnkumat og svo var mér boðið í mat um kvöldið í Skjoldhoj til Chantal og Samiru, mjög gott að fá almenniilegan heimilismat svona til tilbreytingar ;). Á laugardaginn höfðum ég, Liesbeth og Samira smá pikknikk í Skjoldhoj þar sem Samira býr... Sátum úti og borðuðum kökur og kjöftuðum, það var svo gaman að við komum þangað kl 1 og fórum ekki heim fyrr en um 7 ;) Þá var haldið heim á leið og ég þreif allt hátt og lágt (fyrir mjög svo vanþakklátar undirtektir hjá hinum stórkostlega Dennis the menace).  Annars gæti verið (og ég vonast til) að ég flytji eftir áramót. Meðleigjendurnir hennar Liesbeth ætla að flytja út og ég, hún og Samira ætlum að reyna að finna eitthvað sem gæti hentað okkur 3, niðri í bæ, eigum eftir að kíkja á hvort við getum reddað þessu fjárhagslega því ég væri mjöööög til í að flytja og búa með siðmenntuðu fólki á stað þar sem lyftan lyktar ekki eins og piss.

Nú er enn ein vikan byrjuð! Tíminn flýgur hjá, sem er gott á vissan hátt því þá er styttra í Rósu og London, en hins vegar nálgast IE prófið á ógnarhraða :S

Þar til næst, Tinna =)


...og eitt enn

Ég vil bara benda fólki á að taka Rósu til fyrirmyndar, 5 mín eftir þessa færslu var hún búin að bóka ferð hingað!!! Meira svona! ;)

Næsta síða »

Höfundur

Tinna Kristinsdóttir
Tinna Kristinsdóttir

23 ára mastersnemi í markaðsfræði við ASB í Århus..

Heimilisfang: Gudrunsvej 16, 6.t.h., 8220 Brabrand, DK
Símanúmer: (0045) 29701185
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband